|
|
09.05.2006 20:28:47 / Gella
Jæja þá er ég búin með 7 próf
af 10 og þá eru bara 3 próf eftir.... vá hvað ég er góð í
stæ... verst að mér gekk ekki svona vel í stæ í gær.. nei það
er satt, mér gekk ekki allt of vel, ég gat reyndar svarað
öllu en svo voru það einhverjir 3 liðir sem ég gat ekki, í
einum liðnum bulaði ég bara eitthvað, en í hinum tveimur
sleppti ég bara ég gat alls ekki svarað dæminu... en ég er
allavegana búin að ná fél sem er mjög gott, hitti kennarann
mi´nn út í búð og hún sagði mér það ég er ekkert smá ánægð,
veit reyndar ekki hvað ég fékk, en hún sagði að ég hefði
verið langt frá falli, svo það boðar gott svo á morgun er
danska, á fimmtudag er þýska og á föstudag er
náttúrufræði....
Svo er seinasti dagurinn minn í vinnunni núna á fimmtudaginn,
eftir prófið á föstudaginn þá brunum við Geiri bara beint sutur á
fásk að hitta tengdó, þau ætla reyndar að vera í atlavík, svo við
verðum ein í húsinu þeirra og kíkjum svo bara í atlavík til að
hitta þau 
Svo er það bara RVK here I come.... hehe já ég er að fara að
flytja suður núna á sunnudaginn næsta!!!vá mig hlakkar til, svo
byrja ég að vinna 15 maí... ég verð reyndar að fara að taka mig
mikið á og fara að synda og labba meira en ég geri, það kemur bara
í sumar þar sem að ég hef hellings tíma engin skóli, það verður
æði...
Okkur vantar reyndar enn íbúð, ef einhver veit um íbúð til leigu,
helst í kóp eða hf, þá væri það æðislegt, getið kommentað og gefið
upp síma ég mun svo hafa samband, það væri allavegna frábært ef
einhver gæti hjálpað okkur, við erum búin að leyta svo lengi en
ekkert finnst, við erum auðvitað með hvolp eins og þið sjáið
kannski á síðunni, en hún er alveg æðisleg og mjög hlíðin... hún
kæmi heldur ekki til með að vera ein heima meðan við erum í
vinnunni... hún fær að fara með Geira í vinnunna, svo það ætti ekki
að vera neitt vesen á henni!!! vona að einhver geti hjálpað okkur

Svo verður bara djammað og djúsað í sumar nei ég segi bara
svona, systa er að koma til landsins, og ég fæ að sjá litlu frænku
mína sem er orðin 1 árs í fyrsta sinn, sov fæ ég líka að sjá lúkas
og ég er ekki búin að hitta hann í 1 og 1/2 ár... vá hvað mig
hlakkar til að hitta þau... en jæja ég hef ekkert meira að
skrifa,
Vonast til að einhver laumi á íbúð sem að les þetta, getum greytt
50-70þ per. mán, erum reglusöm og reyklaus 
Adios Guðbjörg
»
05.05.2006 18:09:17 / Gella
ég var búin að skrifa helling, en nei datt það ekki út, eða ég var
að fygta eitthvað, nenni ekki að skrifa það aftur, svo ég skrifa
bara seinna, og ég nenni heldur ekki að setja inn myndir því talvan
er svo sljó, verð bara að gera það í RVK....
nenni ekki að skrifa meira bless bless.....
»
02.05.2006 20:52:19 / Gella
Sorry hvað
það er langt síðan ég hef skrifað síðast... ég bara er hætt
að nenna að blogga.... það er líka búið að vera alveg brjálað
hjá mér að gera, alltaf í skólanum til 16.00 og svo bara
beint í vinnunna og vinna til 21.00-22.00 á kvöldin, svo bara
heim að læra og lúlla!!!!
ég var fyrir sunnan núna síðustu helgi hjá honum Geira mínum það
var bara gaman... við fórum og kíktum á nokkrar íbúðir... erum enn
að leita okkur að íbúð til að leigja, en þetta reddast allt
vonandi... fórum líka með Gloríu út á hundasvæði það var alveg
geggjað... það er svo sætt að sjá hana leika sér, henni finnst
alltaf gaman að fara þangað að leika við stóru hundana hún
stækkar bara svo hratt.. ég þarf að setja inn myndir af henni hérna
sem ég tók af henni núna um helgina 
já og prófin eru bara byrjuð, ég er búin með eitt og þá eru 9
eftir... var í uppeldisfræði prófi í dag, gekk bara ágætlega vill
samt ekkert vera að giska á hvað ég fái, það kemur bara allt í
ljós!!!! svo er það bara núna að læra og læra fyrir próf og vinna
núna þessa 10 daga sem ég á eftir svo er ég hætt... þá flyt ég líka
suður hehe... hlakka ekkert smá til að fara að búa með ástinni
minni, það verður bara æði! við erum að spá í að fara á fásk að
heimsækja tengdó núna 12 og vera yfir helgi, þá kemur Geiri til mín
11 maí, sem er næsta skipti sem ég hitti hann, en það er nú ekkert
svo langt þangað til við lifum það alveg af...
núna á Laugardaginn ætla ég að byrja að pakka öllu dótinu mínu
niður, mér er sko farið að hlakka geggjað til að pakka niður... ég
held ég sé eitthvað skrítin, en svona er þetta bara... en jæja ég
held ég eigi bara að fara að læra fyrir íslensku próf... ég blogga
örugglega ekkert núna í einhvern langan tíma en bless á meðan
allavegana
Adios Guðbjörg
»
01.05.2006 00:03:20 / Gella
jæja kannski
það sé tími á smá blogg... ég er nú bara á móti
minnsirkus.is, ég var búin að eyða hellings tíma í að setja
inn myndir og annað þegar að fullt af einhverjum öðrum myndun
birtust, sem að ég átti ekkert og þekkti ekkert til, mér
finnst þetta nú bara rugl!!! en já ég er í RVK núna hjá Geira
mínum, hann kom reyndar til mín síðustu helgi svo ég segi nú
frá einhverju síðan síðast.. hann kom bara svona á óvart það
var alveg æði en já ég er að fara að flytja suður fyrir þá
sem að vita það ekki... flyt bara strax eftir
próf!!!
prófin
byrja semsagt á þriðjudag, og ég er að fara í 10 próf ekki gaman
er búin í prófum 12 maí sem er bara flott, þá ætlum við Geiri á
fásk að hitta tengdó... svo verður bara brunað í bæinn 14 og
komið sér fyrir hvar sem maður á nú eftir að leigja, það virðist
vera eitthvað erfitt að finna íbúð.... en já svona er þetta ætla að
hætta núna, er að fara að horfa á saw 2, skrifa meira seinna...
bless bless
»
17.04.2006 23:42:40 / Gella
jæja þá eru
páskarnir búnir og ég er komin heim, mér finnst það ekki
gaman, mig langar bara að vera í RVK hjá ástinni minni, það
var svo erfitt að fara heim í dag, þ´vi ég er búin að vera
svo lengi fyrir sunnan, og finnst bara að ég eigi ekki að
fara heim, langar bara að vera hjá honum Geira mínum, ég er
strax farin að sakna hans það er alveg hræðilegt, mér
finnst þetta ömulegt....
þá
byrjar vinnan og skólinn á fullu, fer að vinna á morgun og verð að
vinna í 8 klst, svo byrjar skólinn á miðvikudag, svo það verður
bara skóli á miðvikudaginn og fösstudag, svo er bara ein skóla vika
eftir og svo bara próf, ég fer í 10 próf núna, sem mig hlakkar ekki
til að taka en ætli maður verði það ekki eins og allt annað, svo
er bara komið sumarfrí hjá mér, ég er reyndar ekki viss hvar ég
verð í sumar ennþá, hvort það verði hérna á Króknum eða að ég fari
til RVK, en ég vona svo innilega að ég verði hjá ástinni minni í
sumar því mér finnst það ömurlegt að vera svona í sundur
, ég veit reyndar ekki með hann, en ég vona að honum finnist
það en jæja ég hef ekkert meira að segja
nema..............
Geiri,
elsku ástin mín, ég ELSKA þig mestast í öllum heiminum og þú ert
mér allt... Love þín Guðbjörg 4ever <3
»
09.04.2006 19:08:46 / Gella
ég er í RVK
ennþá og það er bara æði, í gær þá fannst mér alltaf eins og
ég væri að fara heim í dag, en svo er maður bra ekkert að
fara heim og það er bara geggjað, það er svo gaman að vera
hjá ástinni sinni, mig langar bara ekkert að páskarnir endi,
en það verður víst að ske einhverntímann, ég á hvort sem er
svo stutt eftir af skólanum svo þetta er allt í lagi, bara
ein vika og svo próf, Vá þetta er bara að verða búið ég er
svo fegin.... 
Já
helgin hjá mér var bara fin sko, á föstudaginn þá hitti ég Helenu
vinkonu mína og kærastan hennar Emma og auðvitað litla krúttið
þeirra hana Hörpu, hún er bara æði.. svo þegar Geiri var búin að
vinna þá fórum við að skoða bíla, og það getur bara vel verið að ég
sé að fara að kaupa mér bíl bara núna fljótlega svo um kvöldið
þá leigðum við bara mynd og höfðum það kósy... eða kannski ekki
alveg þetta var sko hryllingsmynd, (tókum hana svo að ég myndi ekki
sofna ) já ég á það sko til að sofana en já svo á laugardaginn
þá vorum við bara eitthvað að skoða í búðum fyrir nýju íbúðina sem
að Geiri var að kaupa, svo fórum við með Gloríu á hundasvæðið, og
henni fannst alveg geggjað gaman að fá að hlaupa aðeins um, svo um
kvöldið þá leigðum við aðra mynd, og auðvitað þá sofnaði ég
yfir henni, en vaknaði svo þegar hún var búin og horfði á frí
spóluna með Geira mínum, og svo var hann svo sibbinn að hann fór að
lúlla, svo ég horfði á myndina sem við leigðum sem var bara
helvítii góð, svo í dag erum við bara búin að liggja í leti, kíktum
reyndar aðeins á Helenu og Emma og svo fórum við bara aftur heim og
minnz eldaði fyrir ástina sína, og vaskaði líka upp sko minn
er bara dugelgur, svo labbaði ég líka með Gloríu upp í sjoppu og
leigði aðra mynd, við eigum okkur sko ekkert líf.... nei
nei við eigum okkur alveg líf, það er bara svo gott að kúra saman,
en jæja það er ekkert meira búið að ske um helgina svo ég held
þetta sé gott í bili, svo ég kveð að sinni...
Guðbjörg

p.s
minnz er geggjað ástfangin af ástinni minni honum Geira

»
07.04.2006 18:08:32 / Gella
jæja þá er
maður loksins komin í páskafrí, ég reyndar mætti ekki í
skólann í dag vegna þess að ég fór suður í gær og verð
hérna líklegast yfir páskana... það er bara cool, verð núna
með ástinni minni í einhverja 10 daga sem er bara
bestast...
í dag
þá vaknaði ég klukkan 10 vegna þess að það var mjög hávær tónlist
hérna i húsinu, svo ég fór bara á fætur, svo gerði ég verkenfi í
Nát sem ég átti að skila í dag, og um 13.30 þá fór ég og hitti
Helenu vinkonu, Emma kærastan hennar og litlu dúlluna þeirra
Hörpu... hún er alegrt rassgat já svo þegar að Geiri var búin að
vinna þá fórum við að skoða bíla, og ég er mikið að pæla í einum
þeirra, en það kemur í ljós hvort maður kaupi
hann...
já
svona er þetta bara, mig hlakkar svo til í sumar vá það verður bara
geggjað, að fara í útileigur og alles... en jæja ég hef ekkert að
segja í bili svo ég kveð bara adios

p.s
minn er ástfangin upp fyrir haus 
»
05.04.2006 12:46:29 / Gella
Hæ hæ þið sem
að skoðið síðuna mína, jæja þá er bara kominn apríl, en ég
gabbaði engan 1, við Geiri ætluðum að gabba bróður hans,
eldri, en það bara einhvernvegin gleymdist.... svona er þetta
bara já. en já það eru bara 2 dagar í páskafrí, vá mig
hlakkar til, svo fer ég suður á föstudaginn ef veðrið verður
ekki BRJÁLAÐ ég vona að svo verði ekki, því minnz
langar svo að fara suður, er að fara að skoða bíla, því minnz
er búinn að selja hestinn sinn, svo ég er að fara að fá penge
á mánudag hehe já mig hlakkar til, og mig langar líka að
vera hjá ástinni minni á meðan ég er í páskafríi, en ég verð
víst hér um páskana, þá meina ég á króknum, ætli við komum
bara ekki á krókinn daginn fyrir skírdag eða á skírdag eða
eitthvað solleis, mamma og pabbi Geira eru nebblega að koma á
krókinn svo við ætlum að hitta þau 
Gloría
mín er bara að stækka og stækka hún er alveg ofboðslega sæt, ég
ælaði að setja inn myndir af henni en það er víst ekki hægt lengur
en hún er farin að hlíða nafninu sínu, og Nei, þegar verið er að
skamma hana, hún hlíðir líka komdu og sestu, þá sest hún, voða sætt
að sjá hana, og ef maður opnar bílhurð og segir henni að fara inn
þá fer hún inn, mér finnst hún voða dugleg miða við að hún er bara
9 vikna, í dag hún er búin að fara í fyrri sprautuna sína voða
dugleg, svo fer hún í seinni eftir mánuð, Hún er líka alveg hætt að
pissa inni eiginlega á nóttunni, en það kemur fyrir á daginn að það
verði slys 
ég er
byrjuð í vinnunni minni og líkar bara vel, það er fínt að fá að
vinna aðeins og svo er sumarið bara alveg að byrja vá hvað mig
hlakkar til, þegar að þessi vika er búin þá á ég bara eftir 7 daga
í skólanum og svo bara próf, ég er búin í skólanum 12 maí, eða þá
er seinasta prófið mitt, og þá byrja ég bara að vinna á fullu... ég
vona svo innilega að Geiri verði að vinna í héðinsfjarðagöngunum,
svo að þá verður hann nær mér og þegar hann fer í frí þá förum við
bara í útileigur, við ætlum nebblega að kaupa okkur fellihýsi og
bíl núna á næstunni, svo við getum ferðast um landið í sumar með
litla englinum okkar henni Gloríu en jæja ég held að þetta sé nó
í bili, skrifa meira seinna!!!
Over
and out 
Ég
elska þig mestast í öllum heiminum ástin mín (Geiri) og ég
sakna þín líka ofboðslega mikið LOVE YOU =o* =o*
=o*
»
31.03.2006 21:20:09 / Gella
Jæja þá er
komið föstudagskvöld.... maður ætti kannski að fara á ballið
sem er í kvöld í miðgarði með öllu hinu liðinu... en nei ég
held ég fari ekkert, verð bara heima enda er Geiri ástin mín,
að koma =o* hann er bara á leiðinni ohhh hvað mig hlakkar
til.... það verður bara æði... að fá að kúra hjá honum og
sonna það verður bara bestast!!!
en já
ein vika eftir af skólanum og svo bara komin í páskafrí jeii, ég
get ekki beðið og þá verð ég í RVK í viku, hefði getað verið næstum
því í 2 en ég þarf víst að vinna ef ég verð byrjuð þá, held ég
byrji núna á mánudaginn.... jeii loksins komin með vinnu, það er
líka komin drög af próftöflunni minni, og þetta lítur bara ágætlega
út... er ekki í prófi fyrsta daginn, svo er ég í 9 prófum í röð,
alltaf einu á dag (sem er bara gott) og svo er ég ekki í prófi
seinasta daginn sem er mánudagurinn 15, svo ég er komin í sumarfrí
föstudaginn 12..... Vúhú... bara geggjað!!!! en jæja ég veit ekki
hvað ég á að skria, er að reyna að láta tíman líða þangað til að
ástin mín kemur... svo kannski ég fari bara að horfa á TV....
skrifa meira seinna....
Kv.
Guðbjörg ástarbolla 
»
28.03.2006 11:16:26 / Gella
»
18.03.2006 15:34:50 / Gella
Halló allir, já
núna er ein enn helgin komin og það er b ara sweet, þessi
skóli er alveg að verða búin vá hvað mig hlakkar til... já
Geiri ástin mín átti að koma til mín í kvöld, en viti þið
bara hvað hann er kominn, hann kom seinustu nótt, frekar
seint en það er allt í lagi bara gott að fá hann... og hann
kom með félagskap með sér, hann nebblega tók hann Pjakk (sem
er hundurinn hans Pása með sér) svo það er bara mikið að gera
hjá okkur núna, tveir hundar á heimilinu og fullt að
stússast, ég er nú reyndar ekki mikið búin að sjá ástina mína
síðan hann kom, hann nottlega kom í nótt, svo við fórum bara
strax að sofa þegar að hann kom og svo kl 9 í morgun þá
þurfti ég að fara að passa og er að passa enn... ég sem
ætlaði að læra svo mikið á meðan ég væri að passa, en nei nei
þurfti ég ekki að gleyma öllu lærdótinu heima, það er reyndar
ekkert langt heim til að sækja það, en ég held að það taki
sig ekki núna að fara að sækja það... ég geri bara
eitthvað smá á morgun, þarf að læra aðeins í stæ og ensku
kannksi ég reyni að gera þetta í ensku núna, en allavegana ég
held að helgin og næstu dagar eigi bara eftir að vera
æðislegir... Ástin mín hjá mér og allt bara frábært... nenni
ekki að skrifa meira núna, ætla að reyna að læra bless í
bili...
Kv.
Guðbjörg Ósk!
»
13.03.2006 14:36:05 / Gella
Jæja nú er ég
komin heim frá RVK, það var alveg geggjað stuð í bænum...
alltaf gaman að hitta kjellinn sinn tókum því reyndar
rólega bara svona eins og yfirleitt þegar við hittumst.. erum
ekkert voða miklar djammfríkur... en það var bara æði að
vera hjá ástinni sinni... hitti hann líklegast næst á
laugardaginn, þá ætlar hann að koma til mín Oooo það
varður svo gaman, því hann er ekki búin að koma til mín í
mánuð or som... en já það eru víst bara 4 vikur þangað til
að ég er komin í páska frí, svo eftir páskafrí þá er bara 1
vika eftir af skólanum og svo bara próf... ó já how sweet

Já í
gær þá keyrði ég heim með Halldóru frá RVK, á nýja bílnum hennar
Halldóru sem að hún var að kaupa sér, geggjað cool sko... svo þegar
ég var komin heim um 18.00 þá keyrðum við mamma og Davíð bróðir til
AK að sækja litla sæta voffan minn eða ég á frekar að segja litlu
sætu dúlluna mína, því þetta er jú tík... já svo ég sat í bíl í
allan gærdag og er fegin að það sé búið og þarf ekki að sitja í bíl
á næstunni... var komin heim um 23.15 og þá var bara farið að
sofa... svo fékk ég SMS í nótt frá vinkonu minni Helenu og hún er
búin að eiga, Jeiii, hún átti stelpu ég er að spá í að kíkja til AK
næstu helgi og sjá litla gullmolann já það er ekkert mikið
búið að ske annars... Gloría er voða dugleg hún er ekkert búin að
kúka inni, kúkar bara þegar maður fer með hana út, en hún er búin
að pissa nokkrum sinnum en það er allt í lagi hún lærir það að
þá má ekki.... ég vona að hún hafi það fínt, ég er nebblega í
skólanum núna og á einn tíma eftir og þá fer ég sko heim að leika
við hana.. svo fer ég að setja inn fleiri myndir af henni
fljótlega... hún er nebblega orðin miklu stærri en á myndunum sem
að eru hérna inn á... en jæja ég þarf að fara í tíma svo ég segi
bless í bili... 
Ég
elska þig Geiri, ástin mín =o*
Kv.
Guðbjörg Ósk...
»
08.03.2006 16:14:49 / Gella
hæ hæ, já nú er
ég komin til RVK.... kom bara núna áðan, og verð hér framm á
sunnudag, kallinn nottlega að vinna svo ég er bara hérna hjá
ömmu og afa... er að fara í afmæli hjá systir pabba núna á
eftir að borða fullt af kökum nei nei ekkert voða mikið,
bara smá... en já það verður vonanadi svaka stuð hérna í
bænum, það er nottlega alltaf gaman að hitta kallinn sinn
svo ætla ég nú líka að hitta Svandísi frænku á morgun svona
áður en hún fer út til Parísar svo hittir maður kannski
líka Önnu Lísu frænku, ég hef nú bara ekki séð hana ég veit
ekki hvað lengi, ég held ég hafi bara ekkert séð hana síðan
ég fór út til USA, sem að er orðið svolítið langt síðan
eða bara alveg að verða ár , já svo kíkir maður kannski á
hana Halldóru sína og svona.... það er jú víst nógur tíminn,
fyrst að ástin mín er alltaf svona lengi í vinnunni.... en
það verður bara að hafa það, svo lengi sem ég fæ að hitta
hann þá er allt bara æði... já svo ætla ég líka að kaupa
hálsól handa henni Gloríu minni sem að á að vera skær
bleik.... Geiri sagði að það væri allt í lagi, svo ég ætla
að kaupa hana (er sko búin að ákveða hvaða ól það er) svo
verður bara skemmt sér og haft gaman hérna í bænum,
sérstaklega þar sem að ég verð hér alveg í 4
daga
Svo
hlakkar mig alveg geggjað til á Þriðjudaginn í næstu viku, því að
þá fæ ég að sækja litlu dúlluna mína hana Gloríu, og þá verður hún
Helena mín, besta vinkona í heiminum kannski búin að eiga, ohhh mig
hlakkar svo til að fá að vita hvort að það sé stelpa eða strákur...
vá þetta er allt svo spennó 
en jæja
ég fer alveg að fara í afmælið svo ég skrifa ekki meira núna,
ætlaði bara að segja að ég væri komin í bæin og kem ekki heim fyrr
en á sunnudag, það er bara ÆÐI... skrifa örugglega ekkert
áður en ég kem heim... svo hafið það gott það sem eftir er af
vikunni og vonandi eigið þið eftir að eiga frábæra helgi því ég
ætla sko að eiga það 
Over
and out.... Guðbjörg kjáni... 
»
06.03.2006 18:13:42 / Gella
Jæja, já þá
er helgin búin og viti menn ég fór suður ohhh það var svo
gaman, það er alltaf æði að hitta ástina sína, hann Geira...
og ég er sko líka að fara suður núna á miðvikudag/fimmtudag
það bara tekur sig því valla að vera að fara svona heim í
milli tíðinni... en já það var alveg stuð um helgina sko,
hitti nottlega kallinn minn sem er bara bestast og við kíktum
eitthvað aðeins út á lífið á föstudagskvöldið, vorum reyndar
ekkert lengi því hann þurfti að vinna daginn eftir, en ég er
samt stolt af honum að hafa farið að vinna, því hann fékk
bara 4 tíma svenfn... enda var hann alveg örmagna þegar
hann var búinn að vinna og vildi bara fara að lúlla hehe,
hann fékk reyndar að lúlla til 22.00 og þá kíktum við einn
rúnt í bæinn og fórum svo bara og leigðum okkur spólu og
höfðum það kósý, ég reyndar þurfti endilega að gleyma
gleraugunum mínum hérna á króknum svo það var pínu erfitt að
horfa á myndina, enda var ég alveg að gefast upp þegar myndin
var hálfnuð, og augun vildi bara lokast en ég reyndi að
halda mér vakandi, því ég veit hvað það er leiðinlegt að
horfa einn á mynd, en ástin mín var svo æðisleg að hann
leifði mér bara að sofna... en já svo á sunnudeginum þá
kíktum við bara eikkað, í búðir og kíkja og sonna, og svo
þurfti ég að fara heim um 15 leitið, það var ekki gaman,
en það er allt í lagi, ég er að fara að hitta hann núna eftir
2 eða 3 daga vonandi eftir 2.....
já
svo er hundurinn minn alveg að fara að koma til mín, ég má sækja
hann núna um helgina, en ég er jú að fara suður svo ég fæ að sækja
hana á þriðjudaginn í næstu viku... ég er búin að kaupa handa henni
körfu og leikfang, keypti svona reypi handa henni og svo þegar ég
fer suður núna þá ætla ég að kaupa handa henni hálsól

en
jæja ég nenni ekki að skrifa meira ætla að halda áfram að læra,
skrifa meira seinna....
Hlakka til að
hitta þig ástin mín Elska þig mestast
=o*
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|